Efnahagsmál

Hagfræðideild Landsbankans birtir hér yfirlit, greiningar og rannsóknir er snúa að þróun og horfum helstu hagvísa, svo sem verðbólgu, stýrivöxtum, hagvexti, atvinnuleysi og utanríkisviðskipum.

Í vikubyrjun: mánudagurinn 14. maí

Í vikunni hélt Seðlabankinn gjaldeyrisútboð sem lið í áætlun bankans um losun gjaldeyrishafta. Gjaldeyrisútboðið var tvískipt. Í fyrri hluta útboðsins keypti bankinn evrur fyrir 9,2 ma. króna á genginu 238,8.

Helstu hagtölur í síðustu viku

Í vikunni hélt Seðlabankinn gjaldeyrisútboð sem lið í áætlun bankans um losun gjaldeyrishafta. Gjaldeyrisútboðið var tvískipt. Í fyrri hluta útboðsins keypti bankinn evrur fyrir 9,2 ma. króna á genginu 238,8. Í síðari hluta útboðsins seldi bankinn evrur fyrir 9,1 ma. króna á genginu 239. Til samanburðar var heildarkrónueign erlenda aðila í lok mars 428,2 ma.kr.

Seðlabankinn birti í vikunni í fyrsta sinn upplýsingar um samsetningu þátttakenda í þeim gjaldeyrisútboðum sem hafa átt sér stað. 91% kaupanda ríkisverðbréfanna hafa verið lífeyrissjóðir, aðrir aðilar hafa keypt 9%. Undirliggjandi fjárfestingar fjárfestingarleiðarinnar skiptast með þeim hætti að hlutabréf hafa verið 60% kaupanna, skuldabréf 29%, fasteignir 10% og kaup í verðbréfasjóðum 1%.

Helstu hagtölur þessa viku

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands mun tilkynna vaxtaákvörðun miðvikudaginn 16. maí næstkomandi. Hagfræðideild Landsbankans telur að peningastefnunefndin muni hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Sjá nánar í Hagsjá frá 11. maí.

Hagtölur 14. maí 2012

Markaðsupplýsingar 14. maí 2012

Mynd vikunnar

Á mynd vikunnar sést munur á virkum stýrivöxtum Seðlabankans annars vegar og verðbólguálags á skuldabréfamarkaði hins vegar. Munurinn á þessu tvennu er nokkuð góður mælikvarði á raunstýrivexti. Það að raunstýrivextir séu neikvæðir, eins og raunin er núna, bendir til þess að aðhald peningastefnu Seðlabankans sé nokkuð laust.

Í vikubyrjun 14. maí 2012

Hvað fannst þér um þessa grein? Láttu okkur vita

Lesa grein

Hagsjá: Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,25 prósentu hækkun stýrivaxta

Hagfræðideild Landsbankans telur að peningastefnunefndin muni hækka vexti bankans og að meiri líkur séu á 0,25 prósentu hækkun en 0,5. Samhliða vaxtaákvörðuninni mun SÍ kynna nýja þjóðhags-og verðbólguspá. Hagfræðideild telur líklegt að SÍ muni endurskoða verðbólguspá sína upp á við.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands (SÍ) mun tilkynna vaxtaákvörðun miðvikudaginn 16. maí næstkomandi. Hagfræðideild Landsbankans telur að peningastefnunefndin muni hækka vexti bankans og að meiri líkur séu á 0,25 prósentu hækkun en 0,5.

Samhliða vaxtaákvörðuninni mun SÍ kynna nýja þjóðhags-og verðbólguspá. Hagfræðideild telur líklegt að SÍ muni endurskoða verðbólguspá sína upp á við.

Hagsjá: Stýrivaxtaákvörðun maí 2012


Hvað fannst þér um þessa grein? Láttu okkur vita

Lesa grein

Í vikubyrjun: mánudagurinn 7. maí

Ríkissjóður Íslands gaf út skuldabréf að fjárhæð 1 ma. Bandaríkjadala fimmtudaginn 3. maí sl. Skuldabréfin eru til 10 ára og bera 5,875% fasta vexti. Þessi útgáfa, ásamt 1 ma. Bandaríkjadala útgáfu ríkisins í júní í fyrra, virðist staðfesta gott aðgengi ríkissjóðs að erlendum lánsfjármörkuðum.

Helstu hagtölur í síðustu viku

Ríkissjóður Íslands gaf út skuldabréf að fjárhæð 1 ma. Bandaríkjadala (124 ma. íslenskra króna) fimmtudaginn 3. maí síðastliðinn. Skuldabréfin eru til 10 ára (á gjalddaga 11. maí 2022) og bera 5,875% fasta vexti. Þessi útgáfa, ásamt 1 ma. Bandaríkjadala útgáfu ríkisins í júní í fyrra, virðist staðfesta gott aðgengi ríkissjóðs að erlendum lánsfjármörkuðum. Sjá nánar í Hagsjá frá 4. maí.

Samkvæmt tölum sem Hagstofan gaf út í vikunni voru gistinætur á hótelum í mars 134.000 samanborið við 97.300 í mars 2011, fjölgar um 38% milli ára. Fjölgun gistinátta erlenda gesta var 45% en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um ríflega 17%. Gistinætur erlendra gesta voru um 77% af heildarfjölda gistinátta í mars.

Helstu hagtölur þessa viku

Á miðvikudag (9. maí) heldur Seðlabanki Íslands gjaldeyrisútboð sem er hluti í áætlun um afléttingu gjaldeyrishaftanna. Í vikunni birtir Seðlabankinn einnig nokkra áhugaverðar hagtölur svo sem um stöðu lífeyrissjóða (mánudag), efnahag Seðlabankans (þriðjudag) og erlenda stöðu Seðlabankans (fimmtudag).

Hagtölur

Markaðsupplýsingar

Mynd vikunnar

Á mynd vikunnar sjáum við endurgreiðsluferill erlenda lána ríkissjóðs og Seðlabankans ásamt stöðu gjaldeyrisvarasjóðsins.

Hvað fannst þér um þessa grein? Láttu okkur vita

Lesa grein

Hagsjá: Ríkissjóður Íslands vel gjaldgengur á erlendum lánsfjármörkuðum

Ríkissjóður Íslands gaf út skuldabréf að fjárhæð 1 ma. Bandaríkjadala fimmtudaginn 3. maí sl. Skuldabréfin eru til 10 ára og bera 5,875% fasta vexti. Þessi útgáfa, ásamt 1 ma. Bandaríkjadala útgáfu ríkisins í júní í fyrra, virðist staðfesta gott aðgengi ríkissjóðs að erlendum lánsfjármörkuðum.

Ríkissjóður Íslands gaf út skuldabréf að fjárhæð 1 ma. Bandaríkjadala (124 ma. íslenskra króna) fimmtudaginn 3. maí síðastliðinn. Skuldabréfin eru til 10 ára (á gjalddagi 11. maí 2022) og bera 5,875% fasta vexti. Þessi útgáfa, ásamt 1 ma. Bandaríkjadala útgáfu ríkisins í júní í fyrra, virðist staðfesta gott aðgengi ríkissjóðs að erlendum lánsfjármörkuðum.

Hagsjá 4. maí 2012

Hvað fannst þér um þessa grein? Láttu okkur vita

Lesa grein

Vegvísir: Landsbankinn varar eindregið við samþykkt frumvarpa sjávarútvegsráðherra í óbreyttri mynd

Landsbankinn gerir athugasemdir við að ekki hafi verið gerð ítarleg og nákvæm greining á áhrifum tillagnanna á raunverulegar rekstrarforsendur þeirra fyrirtækja sem nú starfa í sjávarútvegi hér á landi.

Lagafrumvörp um stjórnun fiskveiða og veiðigjöld

Landsbankinn gerir athugasemdir við að ekki hafi verið gerð ítarleg og nákvæm greining á áhrifum tillagnanna á raunverulegar rekstrarforsendur þeirra fyrirtækja sem nú starfa í sjávarútvegi hér á landi. Þá virðast ekki hafa verið metin þjóðhagsleg heildaráhrif frumvarpanna, þar með talin ýmis afleidd áhrif tillagnanna á atvinnu, byggðamál og samfélag.

Verðbólgan festist í sessi

Hækkun vístölu neysluverðs milli mars- og aprílmælinga Hagstofunnar var meiri en opinberar spár höfðu gert ráð fyrir. Hjöðnun verðbólgunnar verður að öllum líkindum hægari á næstu mánuðum en gert hafði verið ráð fyrir. Hagfræðideild Landsbankans hefur vaxandi áhyggjur af hugsanlegri víxlverkun launa og verðlags á næstu misserum.

Heldur dregur úr atvinnuleysi

Atvinnuleysið í mars lækkaði milli ára og gerir Hagfræðideild ráð fyrir að sú þróun haldi áfram á árinu.  Svo virðist sem lækkun atvinnuleysis skýrist að einhverju leyti af því að fólk er að færast af vinnumarkaði.

Raungengi krónunnar undir jafnvægi

Raungengi krónunnar er 20% undir meðaltali þess frá aldamótum og hefur það meðaltal oft verið notað sem meginviðmið um hvert raungengið ætti að vera í jafnvægi. Sérfræðingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins mátu jafnvægisraungengi íslensku krónunnar nýverið og er niðurstaða þeirra að krónan sé ekki jafn langt undir jafnvægi sínu eins og ofangreint meðaltal gefur til kynna.

Meiri samhljómur innan peningastefnunefndar árið 2011 en trúverðugleikinn lítill

Almennt séð var meiri samstaða innan peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands við vaxtaákvarðanir á síðasta ári samanborið við árið 2010. Trúverðugleiki peningastefnunnar er hinsvegar í lágmarki sem endurspeglast m.a. í þrálátri verðbólgu og háum langtímaverðbólguvæntingum. Þrátt fyrir að verðbólgan sýni lítil merki þess að vera í rénun hefur peningastefnunefndin farið mjög hægt í hækkun stýrivaxta.

Fjárhagsstaða heimilanna

Greining Seðlabankans bendir til þess að í lok árs 2010 voru 37,5% skuldsettra íbúðaeigenda í skuldavanda en um 20% í greiðsluvanda. Eitt af hverjum tíu skuldsettum heimilum á landinu glímir hinsvegar bæði við greiðslu- og skuldavanda.

Vegvísir - apríl 2012

Hvað fannst þér um þessa grein? Láttu okkur vita

Lesa grein


Fyrirvari

Innihald og form þeirra greininga sem birtast hér eru unnið af starfsmönnum Hagfræðideildar Landsbankans hf. og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem þær voru unnar. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsmanna Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar þær eru dagsettar, en þær geta breyst án fyrirvara. | Lesa allan fyrirvarann

RSS