Fjárhagur - Blogg um fjármál

Fjárhagur er vefsvæði tileinkað fræðslu um fjármál. Hér miðla starfsmenn Landsbankans af þekkingu sinni og reynslu um málefni er snerta fjármál heimilisins og efnahagsmál. Hér má einnig finna ýmis konar verkfæri sem geta hjálpað til við skipulag fjármála heimilisins. | Nánar um Fjárhag

-

Hver er munurinn á prósentum og prósentustigum?

Öðru hvoru rekst maður á það að hugtökin prósenta og prósentustig eru notuð hvort í annars stað. Jafnvel vandaðir fjölmiðlar eiga það til að ruglast á þessum tveimur hugtökum. Það er því ekki úr vegi að minna á svar Vísindavefsins við þessari spurningu, "Hver er munurinn á prósentum og prósentustigum?"

Hugtakið prósentustig er notað til að tákna einn hundraðasta eða eitt prósent. Það er einungis notað þegar talað er um breytingu á prósentu. Þess vegna er ekki sagt að vextir séu til dæmis sjö prósentustig, heldur sjö prósent. Ef það ætti að hækka eða lækka vextina þá væri hugtakið prósentustig hins vegar notað. Það er nokkuð útbreiddur misskilningur að prósenta og prósentustig merki nákvæmlega það sama.

Til að útskýra þetta nánar má taka dæmi: Í vetur var tilkynnt að virðisaukaskattur, sem var 24,5%, myndi hækka um eitt prósentustig og verða 25,5%. Ef tilkynningin hefði hljóðað þannig að virðisaukaskatturinn ætti að hækka um eitt prósent þá hefði skatturinn aðeins hækkað um eitt prósent af þessum 24,5%, sem eru 0,25%. Virðisaukaskatturinn hefði þá orðið 24,75% eftir hækkun.

Vísindavefurinn



Til baka

RSS

Sjálfvirkt heimilsbókhald

Heimilisbókhaldið í Einkabankanum veitir þér góða yfirsýn yfir fjármál heimilisins á myndrænan hátt. Heimilisbókhaldið er mjög einfalt og auðskilið og því fylgir engin fyrirhöfn og enginn kostnaður.

Nánar um heimilisbókhald

Einfalt stöðumat

Hér má má gera einfalt yfirlit yfir ráðstöfunartekjur heimilisins og skiptingu útgjalda. Yfirlitið hjálpar þér að meta helstu útgjaldaþætti heimilisins, reikna út greiðslugetu áður en ný lán eru tekin, og finna laust fé til að leggja fyrir í reglubundinn sparnað.

Nánar um stöðumat

Reiknivélar

Góð yfirsýn yfir fjármálin er nauðsynlegur þáttur í að tryggja traustan fjárhag fjölskyldunnar. Hér er að finna reiknivélar sem auðvelda þér að fá yfirsýn yfir stöðu fjármála þinna og að taka réttar fjárhagslegar ákvarðanir. Einnig getur þú sett upp þína eigin greiðsluáætlun og sótt um greiðsluþjónustu.

Nánar um reiknivélar

l.is

Á farsímavef Landsbankans l.is eru ýmsar gagnlegar upplýsingar auk þess sem hægt er að tengjast Einkabankanum.

Nánar um l.is

Einkabanki

Í Einkabanka Landsbankans getur þú stundað öll almenn bankaviðskipti hratt og örugglega, allan sólarhringinn og þannig sparað tíma, fé og fyrirhöfn.

Nánar um Einkabankann

E*Trade

E*TRADE er verðbréfavefur þar sem viðskiptavinum gefst tækifæri að eiga milliliðalaus viðskipti á netinu á verðbréfamörkuðum í Bandaríkjunum, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Landsbankinn býður upp á þessa þjónustu í samstarfi við E*TRADE Bank Danmark.

Nánar um E*Trade

Markaðir

Á markaðahluta landsbankinn.is má sjá upplýsingar um viðskipti dagsins á íslenskum mörkuðum; þróun íslenskra og erlendra vísitalna, gjaldmiðlakrossa og breytingar á vísitölu neysluverðs. Einnig birtast þar fréttir frá Kauphöll Íslands og fréttir frá Greiningardeild Landsbankans.

Nánar um markaði