Fjárhagur - Blogg um fjármál

Fjárhagur er vefsvæði tileinkað fræðslu um fjármál. Hér miðla starfsmenn Landsbankans af þekkingu sinni og reynslu um málefni er snerta fjármál heimilisins og efnahagsmál. Hér má einnig finna ýmis konar verkfæri sem geta hjálpað til við skipulag fjármála heimilisins. | Nánar um Fjárhag

-

Eignabruni jólagjafanna

"Húmbúkk!" Hvernig skyldi Ebeneser Scrooge meta jólagjafirnar sínar?

Hagfræðilegur þankagangur gengur m.a. út á að kaupa einungis þá hluti og þjónustu sem færa þér jafnmikinn eða meira ábata en þú greiðir fyrir þá. Þannig ætti einstaklingur einungis að kaupa peysu á 10 þúsund krónur ef hann metur hana a.m.k. 10 þúsund króna virði, eða hún færir honum ábata sem er a.m.k. 10 þúsund króna virði. Eftir slík kaup er heildareign viðkomandi sú sama og áður, þ.e. í stað þess að eiga 10 þúsund krónur í reiðufé á hann peysu að verðmæti 10 þúsund krónur. Í mörgum tilfellum er ábati peysukaupandans meiri en sem nemur kaupverðinu. Í þeim tilfellum hagnast hann um það sem nemur mismuninum á ábatanum af peysunni og kaupverðinu. 

Ef hins vegar frændi þessa sama einstaklings kaupir handa honum peysu á 10 þúsund krónur en peysuþeginn hefði aldrei greitt nema 6 þúsund fyrir peysuna sjálfur, þá eru frændurnir til samans 4 þúsund krónum fátækari fyrir vikið. Þarna hefur orðið sóun á fjármunum eða svokallaður eignabruni.

Jólahald og þau pakkaskipti sem fram fara á hverju ári á milli vina og ættingja, hefur því óhjákvæmilega í för með sér stórfelldan eignabruna af því tagi sem að ofan er lýst.

Óvelkomið hálsbindi kveikir hugmynd

Joel Waldfogel, prófessor í hagfræði og kennari við Wharton-viðskiptaháskólann í Pensylvaníu, fékk hálsbindi í jólagjöf frá móðursystur sinni í byrjun 10. áratugar síðustu aldar. Bindið hitti engan veginn í mark, en það kveikti hjá Joel hugmynd að rannsókn á eignabruna jólanna. 

Árið 1993 birtist eftir hann grein í The American Economic Review sem heitir "The Deadweight Cost of Christmas". Greinin var byggð á könnun sem hann gerði meðal nemenda sinna. Hver nemandi tók saman lista yfir allar jólagjafir sem hann hafði fengið, hvað hver gjöf hafði kostað, frá hverjum gjöfin var og tiltók hversu mikils hann sjálfur mat hverja gjöf í dollurum. Niðurstaðan var sú að mat þiggjenda gjafanna var lægra en kaupverðið. Munurinn var minnstur þegar gefandi var líklegur til að þekkja vel til, þ.e. foreldri, maki, systkini eða vinur. Gjafir frá frændum, frænkum, öfum og ömmum voru lægst metnar í hlutfalli við kaupverð.

Waldfogel hefur rannsakað efnið frekar og árið 2009 kom út eftir hann bókin „Scroogenomics: Why You Shouldn't Buy Presents for the Holidays.“ Hann áætlar útfrá rannsóknum sínum að af hverjum 100 dollurum sem varið er til kaupa á jólagjöfum sé verðgildi gjafana í augum þiggjandans einungis að jafnaði 80 dollarar. Hinir 20 dollararnir fara þá í súginn.

Eignabruninn hér á landi 1,1 milljarður króna

Rannsóknasetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst áætlar að hver Íslendingur muni verja 38 þúsund krónum til jólainnkaupa í ár. Ef við gerum ráð fyrir að þessi 38 þúsund skiptist jafnt á milli jólagjafa og annars kostnaðar og að sama hlutfall tapist hér á landi og í Bandaríkjunum, þá verður eignabruninn þessi jól 19 þúsund krónur á hverja fimm manna fjölskyldu. Samanlagt nemur hann þá 1,1 milljarði króna þegar allt er talið.

Nánar upplýsingar



Til baka

RSS

Sjálfvirkt heimilsbókhald

Heimilisbókhaldið í Einkabankanum veitir þér góða yfirsýn yfir fjármál heimilisins á myndrænan hátt. Heimilisbókhaldið er mjög einfalt og auðskilið og því fylgir engin fyrirhöfn og enginn kostnaður.

Nánar um heimilisbókhald

Einfalt stöðumat

Hér má má gera einfalt yfirlit yfir ráðstöfunartekjur heimilisins og skiptingu útgjalda. Yfirlitið hjálpar þér að meta helstu útgjaldaþætti heimilisins, reikna út greiðslugetu áður en ný lán eru tekin, og finna laust fé til að leggja fyrir í reglubundinn sparnað.

Nánar um stöðumat

Reiknivélar

Góð yfirsýn yfir fjármálin er nauðsynlegur þáttur í að tryggja traustan fjárhag fjölskyldunnar. Hér er að finna reiknivélar sem auðvelda þér að fá yfirsýn yfir stöðu fjármála þinna og að taka réttar fjárhagslegar ákvarðanir. Einnig getur þú sett upp þína eigin greiðsluáætlun og sótt um greiðsluþjónustu.

Nánar um reiknivélar

l.is

Á farsímavef Landsbankans l.is eru ýmsar gagnlegar upplýsingar auk þess sem hægt er að tengjast Einkabankanum.

Nánar um l.is

Einkabanki

Í Einkabanka Landsbankans getur þú stundað öll almenn bankaviðskipti hratt og örugglega, allan sólarhringinn og þannig sparað tíma, fé og fyrirhöfn.

Nánar um Einkabankann

E*Trade

E*TRADE er verðbréfavefur þar sem viðskiptavinum gefst tækifæri að eiga milliliðalaus viðskipti á netinu á verðbréfamörkuðum í Bandaríkjunum, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Landsbankinn býður upp á þessa þjónustu í samstarfi við E*TRADE Bank Danmark.

Nánar um E*Trade

Markaðir

Á markaðahluta landsbankinn.is má sjá upplýsingar um viðskipti dagsins á íslenskum mörkuðum; þróun íslenskra og erlendra vísitalna, gjaldmiðlakrossa og breytingar á vísitölu neysluverðs. Einnig birtast þar fréttir frá Kauphöll Íslands og fréttir frá Greiningardeild Landsbankans.

Nánar um markaði