Verðbréfa- og fjárfestingasjóðir Landsbankans eru söfn verðbréfa rekin af Landsvaka hf., rekstrarfélagi með starfsleyfi FME. Sjóðirnir fjárfesta í verðbréfum af ýmsu tagi, t.d. ríkisvíxlum og ríkisskuldabréfum, skuldabréfum fyrirtækja, sveitarfélaga, banka- og sparisjóða, hlutabréfum og erlendum verðbréfum, allt eftir þeirri fjárfestingarstefnu sem viðkomandi sjóður fylgir.
Með því að fjárfesta í sjóðum Landsbankans er hægt að dreifa áhættu af fjárfestingum og draga úr sveiflum í ávöxtun verðbréfasafns. Fjárfestingin er því ekki háð verðbreytingum á einu fyrirtæki eða einum flokki verðbréfa á markaðnum.
Reglur um verðbréfaviðskipti (MiFID)
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré