Ferða­menn dvelja skem­ur og eyða færri krón­um

Um 131 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í janúar. Þeir voru fleiri en í janúar í fyrra en færri en árin fyrir faraldur. Fjórði ársfjórðungur síðasta árs var sá fjölmennasti frá upphafi.
Flugvél
12. febrúar 2024

Brottfarir erlendra ferðamanna voru um 131 þúsund í janúar og því aðeins fleiri en í sama mánuði árið áður þegar 121 þúsund ferðamenn komu. Fjórði ársfjórðungur síðasta árs var fjölmennasti fjórði ársfjórðungur frá upphafi þótt árið í heild hafi ekki verið jafnstórt ferðamannaár og metárið 2018. Fjöldinn missti aðeins dampinn í janúar og sennilega hafa jarðhræringarnar á Reykjanesskaga spilað inn í.

Erlend kortavelta dregst einnig saman milli ára

Þó ferðamönnum hafi fjölgað um 8% milli ára í janúarmánuði dróst erlend kortavelta á föstu gengi saman um 3,8%. Kortavelta á hvern ferðamann var því töluvert minni í janúar nú en fyrir ári og dróst saman um 11% milli ára á föstu gengi. Í desember síðastliðnum mátti sjá sömu þróun, en þá fjölgaði ferðamönnum um rúmlega 19% á sama tíma og kortavelta á föstu gengi dróst saman um 8,6%.

Gistinóttum á hvern ferðamann fækkaði í desember

Skráðar gistinætur erlendra ferðamanna hafa aldrei verið jafn margar og í fyrra. Gistinóttum fjölgaði milli ára alla mánuði ársins, að desember undanskildum, þegar þeim fækkaði um 1% milli ára, þrátt fyrir að ferðamenn í desember hafi verið 20% fleiri en árið áður. Þessar tölur ríma því við tölur um erlenda kortaveltu.

Jarðhræringarnar á Reykjanesskaga virðast hafa haldið lítillega aftur af komu ferðamanna. Hins vegar er ólíklegt að þær hafi haft áhrif á breytta neysluhegðun. Kortaveltutölur síðustu tveggja mánaða og gögn yfir gistinætur í desember benda til þess að ferðamenn dvelji skemur og eyði því minna en mánuðina á undan.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Hagfræðideildar Landsbankans hf. (hagfraedideild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Hagfræðideild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Peningaseðlar
13. maí 2024
Vikubyrjun 13. maí 2024
Samhliða því sem vextir hafa hækkað hafa innlán heimilanna aukist verulega. Þetta hefur skilað sér í stórauknum vaxtatekjum til heimila sem eru nú orðnar meiri en vaxtagjöld.
Fjölbýlishús
10. maí 2024
Spáum hækkandi íbúðaverði
Íbúðaverð hefur hækkað jafnt og þétt á síðustu mánuðum. Í nýrri hagspá spáum við því að það hækki um 7% á þessu ári og um 8-9% næstu tvö ár. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun spáir því að nýjum fullbúnum íbúðum fækki með hverju árinu og fjöldi þeirra komist ekki nálægt því að mæta íbúðaþörf.
Fólk við Geysi
7. maí 2024
Annað metár í ferðaþjónustu í uppsiglingu?
Síðasta ár var metár í íslenskri ferðaþjónustu á flesta mælikvarða, þó ekki hafi verið slegið met í fjölda ferðamanna. Hlutur ferðaþjónustunnar af landsframleiðslu var um 8,8% í fyrra og hefur aldrei verið stærri. Í nýrri hagspá gerum við ráð fyrir að fjöldi ferðamanna í ár jafni metið frá 2018 og að verðmætin sem greinin skili af sér verði meiri en nokkru sinni fyrr.
6. maí 2024
Vikubyrjun 6. maí 2024
Álit markaðsaðila á taumhaldi peningastefnu hefur breyst verulega á síðustu mánuðum þrátt fyrir að stýrivextir hafa verið óbreyttir síðan í ágúst í fyrra. Skýrist það af að verðbólga hefur hjaðnað og hægst hefur á hagkerfinu.
3. maí 2024
Væntingar og verðbólguhorfur aftra vaxtalækkun
Við spáum því að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Þótt verðbólga hafi hjaðnað verulega í apríl og ýmis merki séu komin fram um að undirliggjandi verðbólga fari hjaðnandi teljum við horfur á að verðbólga verði föst í kringum 6% fram yfir sumarmánuðina. Auk þess teljum við að nefndin líti svo á að verðbólguvæntingar hafi ekki gefið nægjanlega eftir og að enn séu merki um þó nokkra spennu í hagkerfinu.  
2. maí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 2. maí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Fólk að ganga við Helgafell
29. apríl 2024
Vikubyrjun 29. apríl 2024
Hagvöxtur verður takmarkaður á næstu árum, samkvæmt nýrri hagspá til ársins 2026 sem við gáfum út í morgun. Við spáum 0,9% hagvexti í ár, 2,2% á næsta ári og loks 2,6% árið 2026.
Fólk að ganga við Helgafell
29. apríl 2024
Hagspá 2024-2026: Þrautseigt hagkerfi við háa vexti
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að hagvöxtur verði afar lítill í ár þar sem háir vextir halda aftur af umsvifum í hagkerfinu. Verðbólga verði þrálát og vextir lækki ekki fyrr en í haust.
Flugvél
24. apríl 2024
Verðbólgan lækkaði í 6,0%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% milli mánaða í apríl og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,8% í 6,0%. Í þetta sinn höfðu tveir undirliðir langmest áhrif á mælinguna, reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda. Þessir tveir undirliðir skýra 95% af hækkun vísitölunnar milli mánaða. Við teljum að verðbólgan haldist í kringum 6% næstu þrjá mánuði.
Hús í Reykjavík
22. apríl 2024
Vikubyrjun 22. apríl 2024
Nafnverð íbúða hefur hækkað um 5,2% á síðustu 12 mánuðum, samkvæmt nýrri vísitölu íbúðaverðs,og raunverð íbúða er lítillega hærra en á sama tíma í fyrra.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur