Fækkun erlendra ferðamanna hefur komið misjafnlega niður á einstökum landsvæðum.
Aprílmánuður var fyrsti mánuðurinn í langan tíma þar sem Wow air naut ekki við. Gistinóttum erlendra ferðamanna á hótelum utan höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 16,2% í apríl miðað við sama mánuð í fyrra en gistinóttum fækkaði hins vegar um 12,1% á höfuðborgarsvæðinu.
Gistinóttum erlendra ferðamanna á hótelum utan höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 16,2% í apríl miðað við sama mánuð í fyrra en gistinóttum fækkaði hins vegar um 12,1% á höfuðborgarsvæðinu. Þessar tölur vekja nokkra athygli en fjöldi erlendra ferðamanna dróst saman um 18,5% í apríl. Það er mun meiri fækkun en á tímabilinu janúar-mars en það skýrist af því að apríl var fyrsti mánuðurinn sem WOW air, sem fór í þrot í lok mars síðastliðinn, naut ekki við.
Hagsjá: Gistinóttum fjölgar verulega utan höfuðborgarsvæðisins þrátt fyrir fækkun ferðamanna (PDF)
Þú getur fengið reglulegar tilkynningar um nýtt útgáfuefni Landsbankans með því að skrá þig á póstlista. Bankinn gefur út fjölbreytt efni um fjármál, efnahagsmál, eignastýringu og ýmislegt fleira.
Skráðu þig á póstlistaInnihald og form þeirra greininga sem birtast hér er unnið af starfsmönnum Hagfræðideildar Landsbankans hf. og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem þær voru unnar. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsmanna Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar þær voru dagsettar, en þær geta breyst án fyrirvara.