Fækkun erlendra ferðamanna hefur komið misjafnlega niður á einstökum landsvæðum.
Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,4% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) milli mánaða. Gangi spáin eftir lækkar ársverðbólgan úr 3,6% í 3,4%.
Hagstofan birtir júnímælingu vísitölu neysluverðs (VNV) miðvikudaginn 26. júní. Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,4% hækkun milli mánaða. Gangi spáin eftir lækkar ársverðbólgan úr 3,6% í 3,4%. Spá okkar nú er 0,1 prósentustigi lægri en bráðabirgðaspá okkar frá því í maí þegar við spáðum 0,5% hækkun milli mánaða. Skýrist breytingin af því að bensín hefur lækkað milli mánaða. Á móti vegur að krónan hefur veikst síðan þá, en verð á evru hefur hækkað um 2,7% milli mánaða og verð á Bandaríkjadal um 1,7%.
Þú getur fengið reglulegar tilkynningar um nýtt útgáfuefni Landsbankans með því að skrá þig á póstlista. Bankinn gefur út fjölbreytt efni um fjármál, efnahagsmál, eignastýringu og ýmislegt fleira.
Skráðu þig á póstlistaInnihald og form þeirra greininga sem birtast hér er unnið af starfsmönnum Hagfræðideildar Landsbankans hf. og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem þær voru unnar. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsmanna Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar þær voru dagsettar, en þær geta breyst án fyrirvara.