Viku­byrj­un 15. apríl 2024

Verðbólga hjaðnar þó nokkuð í apríl, úr 6,8% í 6,1%, en breytist lítið næstu mánuði þar á eftir og verður 5,9% í júlí, samkvæmt okkar nýjustu verðbólguspá. Þótt vaxtahækkanir hafi slegið nokkuð á eftirspurn má enn greina kraft í hagkerfinu og spennu á vinnumarkaði. Þá mælast verðbólguvæntingar enn vel yfir markmiði.
15. apríl 2024

Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman snemma í maí og ef mat þeirra á verðbólguhorfum er það sama og okkar teljum við líklegt að þau bíði með vaxtalækkanir fram yfir sumarmánuðina.  

Vikan framundan

  • Á þriðjudag birtir Seðlabankinn gögn um greiðslumiðlun í mars og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun birtir vísitölu íbúðaverðs.
  • Á fimmtudag birtir Ölgerðin ársuppgjör.
  • Á föstudag birti Sjóvá árshlutauppgjör.

Mynd vikunnar

Við spáum því að verðbólga hjaðni úr 6,8% í 6,1% í apríl og mælist áfram 6,1% í maí. Svo teljum við að hún haldist nokkurn veginn óbreytt í júní og júlí í 5,9%. Hjöðnunin sem við sjáum fyrir okkur í apríl skýrist helst af svokölluðum grunnáhrifum. Grunnáhrif verða vegna þess að verðbólga segir til um breytingar á vísitölu neysluverðs síðustu 12 mánuði. Vísitalan hækkaði verulega í apríl á síðasta ári og nú í apríl dettur sú hækkun loks út úr verðbólgumælingunni. Mánuðina á eftir eru engin jafnskýr grunnáhrif í augsýn og líkur á þrálátri verðbólgu á sumarmánuðunum.

Það helsta frá vikunni sem leið

  • Um 173.300 erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í mars og hafa aldrei verið fleiri í marsmánuði, samkvæmt tölum Ferðamálastofu sem voru birtar í síðustu viku.  Hugsanlega héldu jarðhræringar á Reykjanesskaga lítillega aftur af komum ferðamanna í desember og janúar sl. en eftir það er ekki að sjá að hamfarirnar hafi áhrif á heimsóknir hingað til lands. Íslendingar fóru 36 þúsund utanlandsferðir í mars, 16 þúsund fleiri en farnar voru í mars í fyrra, enda byrjuðu páskar í mars í ár en í apríl í fyrra. Ferðir Íslendinga á fyrstu þremur mánuðum þessa árs eru 8,1% fleiri en á fyrstu þremur mánuðum síðasta árs.
  • Skráð atvinnuleysi mældist 3,8% í mars samkvæmt nýjustu mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Það minnkaði úr 3,9% frá febrúarmánuði en er 0,3 prósentustigum meira en í mars á síðasta ári. Atvinnulausum fækkaði í flestum atvinnugreinum en mest í greinum tengdum ferðaþjónustu.
  • Við birtum verðbólguspá fyrir aprílmánuð og til næstu þriggja mánaða. Við teljum að verðbólga mælist 6,1% í apríl og maí og 5,9% í júní og júlí.
  • Verðbólga í Bandaríkjunum mældist 3,5% í mars, lítillega umfram væntingar og 0,3 prósentustigum umfram verðbólgu í febrúar. Markaðsaðilar vestanhafs telja nú ólíklegt að vaxtalækkunarferli hefjist fyrr en í fyrsta lagi í september.
  • Evrópski seðlabankinn hélt vöxtum óbreyttum í liðinni viku en gaf í skyn að fljótlega yrði hægt að slaka á taumhaldinu ef verðbólga héldi áfram að mjakast í átt að markmiði.
  • Arion banki birti niðurstöðu útboðs sértryggðra skuldabréfa.
  • Lánamál ríkisins birtu niðurstöður í útboði ríkisskuldabréfa, auk niðurstaða úr viðbótarútgáfu. Lánamál ríkisins birtu einnig niðurstöðu úr útboði ríkisvíxla.
  • Alma íbúðafélag birti niðurstöðu skuldabréfaútboðs frá 9. apríl.
  • Útgerðarfélag Reykjavíkur lauk útgáfu á nýjum skuldabréfaflokki UR 260415.

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 15. apríl 2024 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Fólk að ganga við Helgafell
29. apríl 2024
Vikubyrjun 29. apríl 2024
Hagvöxtur verður takmarkaður á næstu árum, samkvæmt nýrri hagspá til ársins 2026 sem við gáfum út í morgun. Við spáum 0,9% hagvexti í ár, 2,2% á næsta ári og loks 2,6% árið 2026.
Fólk að ganga við Helgafell
29. apríl 2024
Hagspá 2024-2026: Þrautseigt hagkerfi við háa vexti
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að hagvöxtur verði afar lítill í ár þar sem háir vextir halda aftur af umsvifum í hagkerfinu. Verðbólga verði þrálát og vextir lækki ekki fyrr en í haust.
Flugvél
24. apríl 2024
Verðbólgan lækkaði í 6,0%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% milli mánaða í apríl og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,8% í 6,0%. Í þetta sinn höfðu tveir undirliðir langmest áhrif á mælinguna, reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda. Þessir tveir undirliðir skýra 95% af hækkun vísitölunnar milli mánaða. Við teljum að verðbólgan haldist í kringum 6% næstu þrjá mánuði.
Hús í Reykjavík
22. apríl 2024
Vikubyrjun 22. apríl 2024
Nafnverð íbúða hefur hækkað um 5,2% á síðustu 12 mánuðum, samkvæmt nýrri vísitölu íbúðaverðs,og raunverð íbúða er lítillega hærra en á sama tíma í fyrra.
Epli
11. apríl 2024
Spáum lækkun verðbólgu úr 6,8% í 6,1%
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,61% á milli mánaða í apríl og að ársverðbólgalækki töluvert, eða úr 6,8% í 6,1%. Mest áhrif til hækkunar í spá okkar hafa reiknuð húsaleiga, flugfargjöld til útlanda og matarkarfan. Apríl í fyrra var stór hækkunarmánuður og þar sem við gerum ráð fyrir töluvert minni mánaðarhækkun nú lækkar ársverðbólga töluvert. Á móti gerum við ekki ráð fyrir því að verðbólga lækki mikið næstu mánuði þar á eftir og búumst við því að hún verði 5,9% í júlí.
Gönguleið
8. apríl 2024
Vikubyrjun 8. apríl 2024
Um 14% fleiri ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í febrúar síðastliðnum en í febrúar í fyrra. Ferðamenn gistu þó skemur en áður, því skráðum gistinóttum fækkaði um 2,7% á milli ára í febrúar.
3. apríl 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 3. apríl 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
2. apríl 2024
Vikubyrjun 2. apríl 2024
Um 30% fyrirtækja vilja fjölga starfsfólki á næstu sex mánuðum, samkvæmt nýjustu könnun Gallup meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins sem var framkvæmd í mars. Hlutfallið eykst úr 23% frá síðustu könnun sem var gerð í desember.  
Íbúðir
26. mars 2024
Hækkandi íbúðaverð kyndir undir verðbólgu
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,8% milli mánaða í mars og við það jókst ársverðbólga úr 6,6% í 6,8%. Langmest áhrif til hækkunar í mælingunni má rekja til hækkunar á íbúðaverði, og þá sérstaklega utan höfuðborgarsvæðisins. Verð á nýjum bílum hafði mest áhrif til lækkunar í mars.
Seðlabanki
25. mars 2024
Vikubyrjun 25. mars 2024
Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti á miðvikudag að stýrivöxtum yrði haldið óbreyttum í 9,25%. Ákvörðunin var í samræmi við spá okkar, en tónninn í yfirlýsingunni var harðari en við bjuggumst við.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur