Hvert stefn­ir banka­heim­ur­inn?

Framtíð fjártækni er björt í opnu bankakerfi. Með samstarfi banka og fyrirtækja getur fjármálaþjónusta orðið fjölbreyttari og aðgengilegri.
11. nóvember 2019

Hugtakið fjártækni á við um ýmsar tæknilausnir er leysa venjulega bankaþjónustu af hólmi, ekki síst þær sem gefa neytendum aukið svigrúm til að nýta þjónustu sem þeir telja sér best henta hverju sinni. Þegar rætt er um opið bankakerfi er átt við að bankar geri öðrum á fjártæknimarkaði kleift að útbúa forrit (öpp og fleira) sem geta „talað við“ tölvukerfi bankanna. Þannig geti fyrirtæki á fjártæknimarkaði boðið upp á fjármálaþjónustu sem áður var eingöngu í höndum banka. Það merkir ekki að bankarnir hætti að veita bankaþjónustu en á hinn bóginn má búast við að hún verði fjölbreyttari og aðgengilegri. Bankaþjónusta muni ekki einskorðast við öpp og netbanka eða aðrar lausnir sem bankarnir bjóða upp á. Vafalítið munu bankar hérlendis engu að síður taka virkan þátt í þessari þróun og bjóða viðskiptavinum til dæmis að framkvæma greiðslur í netbanka og appi af reikningi sem viðkomandi á í öðrum banka.

Strangar reglur gilda um hvaða upplýsingar bankar mega nota í sinni starfsemi. Önnur fyrirtæki sem munu hasla sér völl á fjártæknimarkaði eru ekki endilega bundin af sömu reglum. Veiti neytandi leyfi sitt fyrir því getur fyrirtæki til dæmis tengt saman ýmis gögn sem bankar hafa engan aðgang að, s.s. samskiptasögu í tölvupósti og spjallþráðum eða upplýsingar af samfélagsmiðlum. Fyrirtækið getur síðan notað þessar upplýsingar, s.s. um vinatengsl og áhugamál, til að bjóða upp á sérsniðna fjármálaþjónustu.

Nýjar vörur – nýtt virði

Eitt dæmi um slíka sérsniðna fjármálaþjónustu gæti t.d. litið svona út: Ef höfuðborgarbúi er í fríi á Vestfjörðum getur hann fengið sérsniðna tilkynningu í fjármálaappið um að hann fái vildarkjör hjá tiltekinni verslun á Ísafirði. Sé um dýra vöru að ræða er líklegt að tilboðinu fylgi lánatilboð frá nokkrum bönkum sem neytandinn getur valið á milli.

Slíkt app hefur ekki enn litið dagsins ljós hér á landi en ljóst er að bankaheimurinn stefnir hraðbyri í þessa átt. Nýjum reglum Evrópusambandsins (PSD2) er m.a. ætlað að auka samkeppni og neytendavernd á fjármálamarkaði, sem og að stuðla að vöruþróun og nýsköpun í fjármálaheiminum. Með reglunum, sem verða senn að lögum hérlendis, er öðrum bönkum og leyfisskyldum þjónustuveitendum, hvar sem er innan Evrópska efnahagssvæðisins, veittur aðgangur að greiðslureikningum og greiðslum af þeim, að því gefnu að viðskiptavinir hafi veitt til þess samþykki. Á sama tíma hafa persónuverndarlög í Evrópu verið hert sem gera kröfu um ótvírætt samþykki fyrir vinnslu persónuupplýsinga.

Þjónusta sem þessi byggir á getu bankanna til að bjóða upp á aðgang að tölvukerfum sínum. Landsbankinn tekur fullan þátt í þessari þróun og í sumar var bankinn t.d. fyrstur til að bjóða upp á aðgang að millifærslulausn (A2A), en með henni geta fyrirtæki á fjártæknimarkaði útbúið hugbúnaðarlausnir sem gera viðskiptavinum bankans kleift að greiða beint út af reikningum sínum, veiti þeir samþykki sitt fyrir því. Boltinn er, að þessu leyti, hjá fjártæknifyrirtækjunum.

API-markaðstorg Landsbankans

Aðgangur að raunumhverfi fyrir A2A-greiðslulausnina er aðeins veittur fyrirtækjum sem uppfylla skilyrði bankans, s.s. um fjárhagslegt heilbrigði, öryggi hugbúnaðarlausnar og orðsporsáhættu.

Skemmtilegra að borga

Í alþjóðlegri umræðu um opið bankakerfi hafa vissar áhyggjur skotið upp kollinum, m.a. um öryggismál, persónuvernd og hvort nýjungarnar muni ýta undir óæskilega neysluhegðun. Ljóst er að greiðslur og lántaka verða aðgengilegri. Fyrirtæki geta til dæmis smíðað app sem nýtir síma til að skanna strikamerki á vörum úti í búð. Þegar neytandinn smellir á kaupa-hnapp í appinu skuldfærist fjárhæðin sjálfkrafa, af forskráðum bankareikningi, og hann getur gengið út úr búðinni án frekari málalenginga. Lántaka vegna kaupa á stærri hlutum verður líka mögulega fljótlegri.

Margar slíkar hugmyndir hafa verið ræddar undanfarin ár og skal engan undra. Tæknin hefur jú opnað ný og spennandi tækifæri á mörgum sviðum, ekki bara í fjármálaheiminum. Fólk gerir almennt meiri kröfur um hærra þjónustustig, sjálfsafgreiðsla hefur aukist í daglegu lífi, fólk ætlast til þess af þjónustufyrirtækjum að ferlar séu straumlínulagaðir og að hvers konar afgreiðsla taki sem stystan tíma.

Þegar neytendur nota í ríkari mæli greiðslulausnir fjártæknifyrirtækis verður bankinn ekki eins sýnilegur þátttakandi í daglegum viðskiptum og hann er í dag. Neysla og lántaka verður mögulega ekki eins áþreifanleg eða raunveruleg. Það eitt, kann að ýta undir breytta hegðun neytenda, að neyslan aukist í daglega lífinu af því að það verður svo auðvelt og „skemmtilegt“ að borga.

Greinin birtist fyrst í tímaritinu Tölvumál í nóvember 2019.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Hamborgartréð tendrað í Reykjavík
29. nóv. 2023
Hamborgartréð - saga samfélagsbreytinga og þakklætis
Saga Hamborgartrésins er hógvær, en á vissan hátt bæði breytingasaga Reykjavíkur og falleg jólasaga gjafmildi og þakklætis.
Reykjastræti
16. nóv. 2023
Af hverju heitir hraðbanki ekki tölvubanki?
Hæ! Áttu eitthvað í handraðanum? Eða þarftu kannski að skreppa á Raufarhöfn? Geturðu notað kortið þitt í tölvubankanum? Vissir þú að þetta tengist allt peningum með einhverjum hætti?
Netbanki fyrirtækja
10. nóv. 2023
Bankakerfið er að opnast
Landsbankinn kynnti á dögunum nýjung í appinu sínu sem gerir fólki kleift að millifæra af reikningum í öðrum bönkum. Þessi þjónusta er alltaf háð samþykki viðskiptavina. Landsbankinn er fyrsti bankinn á Íslandi sem býður fólki að framkvæma aðgerðir í öðrum bönkum úr sínu appi.
9. nóv. 2023
Það styttist í jólin og jólastressið – eða hvað?
Jólin eiga að vera hátíð gleði og friðar en við upplifum oft að þau snúist að miklu leyti um neyslu og jólastress. Í aðdraganda jóla hættir mörgum til að sleppa sér í neyslunni og kaupa hluti sem hvorki þau sjálf, fjölskyldu eða vini vantar í raun og veru. Viljum við breyta þessu?
Sjálfbærnidagur 2023
8. sept. 2023
Sjálfbærnidagur 2023 – upptökur
Sjálfbærnidagur Landsbankans var haldinn í Grósku 7. september 2023. Á fundinum beindum við sjónunum að því sem íslensk fyrirtæki hafa verið að gera til að auka sjálfbærni í sínum rekstri og hvernig gera megi enn betur.
Myndlistarsýning
17. ágúst 2023
Hringrás – innsýn í listasafn Landsbankans
Sýningin Hringrás er úrval verka úr listasafni Landsbankans. Á sýningunni er kannað hvernig áhrif og innblástur þróast með mismunandi miðlum og í meðförum ólíkra kynslóða listafólks. Verkin endurspegla áherslu á ákveðnar listrænar hreyfingar, abstraktlist og geómetríska abstraksjón, hlutbundna og hlutlæga list, grafíska list (bæði ætimyndir og teikningar) og súrrealisma. Hringrás veitir innsýn í fjölbreytileika og breidd listasafns Landsbankans, þvert á framsetningarmáta og samhengi. 
Ungmenni úr Hinsegin félagsmiðstöðinni
10. ágúst 2023
„Baráttan er ekki búin fyrr en …“
Hinsegin félagsmiðstöðin verður með einn stærsta vagninn í Gleðigöngunni en hann er 14 metra langur og rúmar meira en 100 krakka. Þótt vagninn verði litríkur og glæsilegur er undirtónninn samt alvarlegur.
13. júní 2023
Líffræðilegur fjölbreytileiki lykillinn að farsæld – líka í fjármálum
Fjölbreytileiki lífríkis er ein sterkasta vörn okkar gegn frekari hlýnun, fyrst og fremst vegna þess að hin ýmsu vistkerfi binda kolefni. Vinna þarf samtímis að lausn á loftslagsvandanum og verndun fjölbreytileika lífríkisins.
24. maí 2023
Er fyrrverandi að fylgjast með fjármálunum þínum?
Viðskiptavinir Landsbankans, eins og annarra fjármálafyrirtækja, hafa lengi getað veitt öðrum aðgang að fjármálunum sínum. Algengt dæmi um þetta er þegar hjón eða fólk í sambúð veitir hvort öðru aðgang að reikningum hvors annars. Þannig fá þau betri yfirsýn yfir fjármálin, geta millifært, greitt reikninga og svo framvegis.
Hildur Kristín Stefánsdóttir
11. maí 2023
Tónlist fyrir Söngvakeppnina og bankann í sömu viku
Vörumerki Landsbankans fór í fínstillingu fyrr í vor sem fól meðal annars í sér að uppfæra hljóðheim bankans. Til að leysa það verkefni fengum við til liðs við okkur pródúserinn og tónlistarkonuna Hildi Kristínu Stefánsdóttur. 
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur