Lands­bank­inn nýt­ir heim­ild til kaupa á eig­in hlut­um

Austurbakki
15. febrúar 2024

Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að nýta heimild til kaupa á eigin hlutum í bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans 23. mars 2023. Samkvæmt endurkaupaáætluninni munu kaupin nema að hámarki 54 milljónum hluta eða sem nemur 0,23% af útgefnu hlutafé.

Landsbankinn hefur áður gefið hluthöfum kost á að selja hluti sína í bankanum, síðast í febrúar 2022.

Landsbankinn býðst til að kaupa hluti af hluthöfum á endurkaupatímabili sem stendur frá og með 19. febrúar 2024 til og með 4. mars 2024.

Þeir hluthafar sem ákveða að taka boði bankans skulu fylla út tilkynningu þar að lútandi og senda bankanum. Eyðublað fyrir tilkynninguna er aðgengilegt á vef bankans. Tilkynningar verða afgreiddar á tímabilinu í þeirri röð sem þær berast bankanum þar til hámarkinu (54 milljónum hluta) er náð. Verði hámarkinu náð á endurkaupatímabilinu verða frekari tilkynningar því ekki afgreiddar.

Í samræmi við ákvörðun aðalfundar býðst Landsbankinn til að kaupa hvern hlut á endurkaupatímabilinu á gengi sem samsvarar hlutfallinu á milli eigin fjár sem tilheyrir hluthöfum bankans og hlutafjár bankans, samkvæmt síðasta birta uppgjöri áður en endurkaupatímabilið hefst.

Samkvæmt ársuppgjöri Landsbankans 2023 er eigið fé sem tilheyrir hluthöfum bankans 303.754 milljónir króna og útistandandi hlutir 23.621 milljón. Í samræmi við framangreint býðst Landsbankinn því til að kaupa hvern hlut á genginu 12,8595 á endurkaupatímabilinu.

Heildarfjöldi hluta í bankanum er 24.000 milljónir hluta. Fjöldi hluthafa í bankanum er 849. Ríkissjóður á um 23.567 milljónir hluta eða um 98,2% af útgefnum hlutum. Bankinn á um 379 milljónir eigin hluti eða um 1,6% af útgefnu hlutafé. Aðrir hluthafar en ríkissjóður og bankinn eiga um 54 milljónir hluta eða um 0,23% af útgefnu hlutafé.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fyrir hluthafa sem vilja nýta sér boð bankans er að finna á landsbankinn.is/endurkaup.

Þá verða upplýsingar veittar í síma 410 4040 og einnig í gegnum tölvupóst á vl@landsbankinn.is.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
2. maí 2024
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024
Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 nam 7,2 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 9,3% samanborið við 11,1% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
19. apríl 2024
Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2024
Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var 19. apríl 2024, samþykkti að greiða 16.535 milljónir króna í arð til hluthafa.
Austurbakki
4. apríl 2024
S&P hækkar lánshæfismat Landsbankans í BBB+
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði hækkað lánshæfismat Landsbankans. Hækkunin nemur einu þrepi og er lánshæfismatið því BBB+ með stöðugum horfum.
Austurbakki
27. mars 2024
Aðalfundur Landsbankans 2024 - fundarboð
Aðalfundur Landsbankans verður haldinn föstudaginn 19. apríl 2024 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
Austurbakki
22. mars 2024
Bankasýslan var upplýst um áform Landsbankans um að kaupa TM
Bankaráð Landsbankans hefur svarað bréfi Bankasýslu ríkisins frá 18. mars sl. þar sem óskað er eftir tilteknum upplýsingum um kaup bankans á TM tryggingum.
Austurbakki
19. mars 2024
Aðalfundi Landsbankans frestað til 19. apríl
Á fundi bankaráðs Landsbankans þann 19. mars 2024 var ákveðið að fresta aðalfundi bankans, sem vera átti miðvikudaginn 20. mars 2024. Að höfðu samráði við Bankasýslu ríkisins var ákveðið að halda aðalfundinn föstudaginn 19. apríl.
Austurbakki
17. mars 2024
Tilboð Landsbankans í TM samþykkt
Landsbankinn og Kvika banki hafa komist að samkomulagi um að hefja einkaviðræður um kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. („TM“) á grundvelli kauptilboðs sem bankinn lagði fram í allt hlutafé félagsins þann 15. mars sl. Möguleg kaup eru m.a. háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins og fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Austurbakki
7. mars 2024
Aðalfundur Landsbankans 2024
Aðalfundur Landsbankans verður haldinn miðvikudaginn 20. mars 2024 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
Austurbakki
6. mars 2024
Sexföld umframeftirspurn eftir grænum skuldabréfum
Þann 5. mars 2024 lauk Landsbankinn við sölu á grænum skuldabréfum að fjárhæð 300 milljónir evra. Um var að ræða fjórðu útgáfu bankans á grænum skuldabréfum í evrum.
Austurbakki
5. mars 2024
Tilkynning um kaup Landsbankans á eigin hlutum – lok endurkaupatímabils 2024
Þann 15. febrúar 2024 birti Landsbankinn tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum samkvæmt endurkaupaáætlun á tímabilinu 19. febrúar 2024 til og með 4. mars 2024. Á endurkaupatímabilinu keypti Landsbankinn samtals 6.423.476 eigin hluti á genginu 12,8595, að kaupvirði 82.602.689 krónur.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur